| ||
|
sunnudagur, febrúar 20, 2005 Hæhæ kæra dagbók. Dagurinn í dag var svaka skentlegur ég fékk mér hindberjatertu og latte í kringlunni og fór svo að kaupa í matinn með mömmu og ég keypti salat og pasta og kjúkling og svo fór ég heim og svo horfði ég á Oprah Winfrey með mömmu. Mamma er besti vinur minn. ![]() Ég og móðir mín á góðri stundu Oddvitinn fullyrti: 8:04 PM.
miðvikudagur, ágúst 04, 2004 Þetta verður stutt.
Bloggskriftir mínar hafa verið mér og öðrum afar góð dægrastytting og ánægja allt frá því að ég hóf skriftir seint á síðasta ári. Þrátt fyrir þetta hefur áhugi minn og ánægja fyrir vefritun farið ört dvínandi og er ég kominn á það stig að hafa lítinn sem engan áhuga fyrir blogginu mínu. Ég hef því ákveðið að hætta að rita hér eins lengi og ég tel best en er að öllum líkindum hættur að rita. Þetta hafa verið góðar stundir og ég þakka þeim sem lásu. Oddvitinn fullyrti: 6:51 PM.
sunnudagur, ágúst 01, 2004 Ég fór á Innipúkann í gær. Hann var einum of góður. Hljómsveitir á borð við Mammút, Súkkat, Bennihemmhemm, Ómar Ragnarsson, Slingapore sing og Trabant báru af. Mér fannst þó Benni, Ómar og Trabantarnir vera bestir.
-- Þegar gleðin stóð sem hæst var mér hugsað til útihátíðargesta. Þegar ég hefði getað verið í svona aðstöðu:
Hafði ég það bara svona: Auðvitað er það mismunandi hvort fólki finnst skemmtilegra. En ég hef lúmskan grun um að þú kjósir eitt fram yfir annað af þessu. Oddvitinn fullyrti: 6:10 PM.
fimmtudagur, júlí 29, 2004 Ástæða fyrir rittöf er afar ströng rannsóknarvinna sem ég er að vinna fyrir hið opinbera.
Ráðgátan hvort stelpur kúki. Þótt vinnan sé aðeins hálfunnin er ég kominn á það eftir þennan rannsóknartíma að stelpur kúka ekki. Drög að rökum eru eftirfarandi:
Þótt formleg vinna er eftir þá er það mjög augljóst að niðurstaða liggur fyrir. Þið megið búast við mér á forsíðu Lifandi Vísinda og Good Housekeeping á næstunni. Oddvitinn fullyrti: 8:48 PM.
mánudagur, júlí 26, 2004 Oddvitinn fullyrti: 5:27 PM.
sunnudagur, júlí 25, 2004
Hjörtur Ingvi Jóhannsson myndast sjaldan vel. Hann á það svo óheppilega til að verða mjög rauðeygður og kjánalegur, auk þess að bera sig illa. Þessi mynd, sem tekin var í Eistlandi í lokakvöldverðinum í Tartu finnst mér vera best heppnaða mynd sem tekin hefur verið af honum blessuðum. Ég vil bera kærar þakkir til Skúla Arnlaugssonar fyrir þessa gífurlegu næmni og fagmennsku við tökur þessarar myndar. Nú hlusta ég á Charlie Parker, áðan var það Thealonius Monk og bráðum verður það Django Reinhardt. Djassinnn á hug minn allan þessa dagana og síðustu daga einnig. Mikið finnst mér samt slæmt að á Íslandi er ekki neinn almennilegur djassstaður til. Það er svo mikið af frábærum djassspilurum á Íslandi og einnig svo mikið af djassáhugamönnum. Afhverju gengur enginn í þessi skjöl?? Oddvitinn fullyrti: 7:07 PM.
föstudagur, júlí 23, 2004 Eftirfarandi er tvöföld tónleikarýni:
Miðvikudagurinn 21. júlí í tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Elísabet Þórðardóttir Eva Maria von Fitzgerburg léku á píanó. Stúlkurnar Elísabet og Eva Maria gerðu sér hlé frá stórri tónleikaferð um Norður Ameríku til að leika nokkur lög af nýju plötunni sinni: Playing with snowflakes in the sun fyrir ættingja og vini. Eva Maria reið á vaðið og tók lengri lögin af fyrrnefndri plötu. Lög á borð við Happy beneath you og Tea time disagreement nutu sín hvað best í hægum og kraftmiklum útsetningum hennar á píanó og munnhörpu. Eva gerði nokkrar feilnótur er hún tók Negroes are better en þar spilaði ölvun greinilega sterklega inn í. Engu að síður gerði hún sitt vel blessunin. Elísabet tók þvínæst við með afar einlæg og róleg lög sem fóru misvel í áheyrendur. Hún náði salnum þó gjörsamlega á sitt vald er hún söng lag Gunnars Guttormssonar, Senn hallar að vori í einsöng án undirspils. Lögin eftir sönginn voru til fyrirmyndar og finnst mér persónulega lagið Cerial stealer standa uppúr. Eftir hlé léku þær Consertino fyrir tvö píanó og lúðrasveit eftir Gnut Brjonsveski. Þrátt fyrir slakan básúnuleik var verkið stórkoslega flutt í alla staði og hnýttu endi á annars prýðisgóða tónleika sem fara mér seint úr minnum. Fimmtudagurinn 22. júlí á Kaffi List Hljómsveitin Tenderfoot lék fyrir dansi Tónleikarnir byrjuðu afar seint og verð ég að lýsa óþökk minni yfir því. Þeir byrjuðu afar vel, söngvarinn afar ljúfróma, flott stílgítarspil í bland við afar þéttan bassa- og trommuleik. Svo tók við endurtekning á tvemur fyrstu lögunum það sem eftir var af tónleikunum og þótti mér það afar miður. Ekki nóg með það, heldur var staðurinn afar troðinn og illa heppnaður til tónleikahalda. Ég lét mig hverfa bráðlega eftir sjötta lagið. Þessir tónleikar fara mér snemma úr minnum. -------------
Oddvitinn fullyrti: 2:45 PM.
|
Ritræpingar
Dóra dúlla Hlekkir PitchforkmediaBaggalúturinn öll tónlist Leðurblakan Nemendamafían Momus Mugison Kvikmyndagagnabanki alnetsins Hið gamla góða 10/01/2003 - 11/01/2003 Hönnun Hönnun og andleg ráðgjöf: DG |
|
|
|
||